Þrátt fyrir gráan og gugginn dag mættu ótrúlega margir á fyrsta viðburð sumarsins í Seljagarði. Hér eru myndir af deginum, við bjuggum til stíga og beð í stóra moldarbeðið okkar, settum niður kartöflur og sáðum fræjum og allskyns grænmeti. Hinrik Carl frá Slow food hreyfingunni gaf okkur súpu og Markús Bjarnason spilaði fyrir okkur ljúfa tóna!
Author Archives: Seljagarður borgarbýli
Sáningarhátíð 31. maí klukkan 13
Tveir garðar í bígerð!
Spennandi tímar eru framundan! Hópurinn hefur ákveðið að skipta sér niður í tvö systraverkefni. Eitt mun vera í Seljahverfi en staðsetningin á öðru verkefninu kemur í ljós innan skamms. Fyrsti opni viðburðurinn fyrir Seljagarð hefur nú verið auglýstur þar sem áhugasömum er boðið að koma og taka þátt. Fundurinn verður haldinn klukkan 14:20 laugardaginn 24. maí en staðsetninginHalda áfram að lesa „Tveir garðar í bígerð!“
„Fjölmiðlafár“ allt að verða vitlaust
„Fjölmiðlafár“ Gaman var að fá að fara í Morgunútvarp Rásar tvö um daginn og svara spurningum um borgarbýlið. Við, Þórey Mjallhvít og Páll Líndal, fengum tækifæri að koma hugmyndinni á framfæri og útskýra aðeins hvað hópurinn stendur fyrir. Hér má finna viðtalið: http://www.ruv.is/mannlif/vilja-borgarbyli-i-oll-hverfi. Einnig má finna viðtal við Þóreyju Mjallhvíti í síðasta tölublaði Sumarhússins og garðsins þar sem hún lýsir sinniHalda áfram að lesa „„Fjölmiðlafár“ allt að verða vitlaust“
Húrra vei, fyrsti styrkur í hús!
Þau gleðitíðindi voru að berast að hópur undir stjórn Brynju Þóru Guðnadóttur var að fá námslaunstyrk fyrir sumarið. Markmið hópsins í sumar verður að vinna að mörgum verkefnum tengdum þeim reit sem við endum á. Eins og umhverfis og vettvangskönnun, hönnun, greining á tilraunum og prófunum, upplýsingaöflun, hugmyndavinna, skissur, teikningar, gerð korta og skýringamynda og efnisöflun. ÍHalda áfram að lesa „Húrra vei, fyrsti styrkur í hús!“
Ó borg mín borg
Núna eru nokkrir mánuðir síðan að hugmyndin fór úr hausum okkar yfir í að vera sett á pappír og þaðan í hendur á öðrum. En það er ekki nóg að hafa hugmyndir, maður verður líka að vera praktískur og taka réttar ákvarðanir. Staðan er sú að flestir myndu eflaust vilja fá samfélagsrekið og sjálfbært borgarbýli í hvert hverfi. En þarHalda áfram að lesa „Ó borg mín borg“
Hvað nú og hvers vegna
Sjálfbærni er nauðsyn Sjálfbærni er krafa samtímant, nauðsyn sem að við getum ekki leyft okkur að sniðganga. Í nýútkominni skýrslu HÍ um neyslumynstur Íslendinga kemur fram að ef allir jarðabúar taki upp íslenskum lífsstíl þá þurfi 6 jarðir til að anna því. Áskorunin sem að við stöndum frammi fyrir er að skapa okkur betri skilyrðiHalda áfram að lesa „Hvað nú og hvers vegna“
Gulleggið og Nordmatch
Hópurinn situr ekki auðum höndum á meðan við bíðum eftir svari frá lóðareigendunum. Þessa stundina er ein okkar stödd í Finnlandi á Nordmatch þar sem að hún mun kynna verkefnið okkar fyrir dómsnefnd. Einnig ætlar hópurinn að taka þátt í Gullegginu hér á Íslandi. Gulleggið er frumkvöðla samkeppni sem að bíður einstaklingum og hópum að mótaHalda áfram að lesa „Gulleggið og Nordmatch“
Lóð og svæði til ræktunar
Eins og stendur er hópurinn að leita að lóð fyrir garðinn og mögulegum samstörfum. Það er í mörg horn að gæta, við erum með lista yfir aðila sem við þurfum að tala við. Ákjósanlegast væri að finna stað sem er í miðju hverfi á höfuðborgarsvæðinu sem að er vel sýnilegur öllum þeim sem eiga leiðHalda áfram að lesa „Lóð og svæði til ræktunar“
